Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir
Víðsjá - Ein Podcast von RÚV

Kategorien:
Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hlustendum ferðasöguna í tali og tónum. Hún rúllaði því verkefni upp með glans og afraksturinn er þáttur dagsins; svipmynd af tónlistarnema í Georgíu. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir