Helena Margrét, Brím og Speglahúsið

Víðsjá - Ein Podcast von RÚV

Kategorien:

Helena Margrét Jónsdóttir hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir málverk sem, samkvæmt dómnefnd, þykja vönduð og kyrrlát en á sama tíma með nýstárlegan undirtón sem virkjar ímyndunaraflið og færir áhorfandann inn í draumkenndan hugarheim. Við hittum Helenu Margréti á vinnustofu hennar í þætti dagsins og ræðum við hana meðal annars um pensla, köngulær og afmarkaða vinnudaga. Í þættinum rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í skáldsöguna Speglahúsið eftir Benný Sif Ísleifsdóttur og Trausti Ólafsson segir frá upplifun sinni af óperunni Brím í Tjarnabíói.