Selfoss hlaðvarpið #004 - Lip sync battle mun sigra

Selfoss Hlaðvarpið - Ein Podcast von SelfossTV

Arnar Helgi skiptir um gír og hefur upphitun Selfoss hlaðvarpsins fyrir fótboltasumarið. Brynja Valgeirsdóttir og Erna Guðjónsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna fengu sér sæti í Kaffi Krúsar stúdíóinu þar sem þær skáluðu í vatni úr okkar fínustu Ittalaglösum. Samstarfsaðili Selfoss hlaðvarpsins er Kaffi Krús, stelpurnar völdu sína eftirlætis rétti, hið exotíska Krúsar salat og Ostapizzuna "Say cheese". Hvoru tveggja rétt svör, en spurningin er auðveld þar sem það eru engin röng svör. Farið var létt yfir síðasta tímabil og æfingatímabilið krufið. Farið yfir hvaða leikmenn við höfum kvatt og hverjar koma nýjar inn. Stelpurnar sögðu góðar sögur af æfingaferðinni þeirra til spánar og Arnar fékk þær til að spá aðeins í tímabilið framundan. Selfoss hlaðvarpið er fullt tilhlökkunar fyrir sumrinu að fá að fylgjast með stelpunum okkar berjast í Pepsi Max deildinni. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Hatrið mun sigra, Hatari