Glæfraleikur Macrons
Heimsglugginn - Ein Podcast von RÚV - Donnerstags
Kategorien:
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði óvænt til þingkosninga í lok júní og þykir mörgum hann taka mikla áhættu. Bogi Ágústsson ræddi við Damien Degeorges, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur með meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði. Þeir ræddu stöðuna í frönskum stjórnmálum. meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði Í síðasta hluta Heimsgluggans ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga um Kalmarsambandið. Þann 17. júní voru 627 ár frá upphafi sambandsins með krýningu Eiríks af Pommern í Kalmar í Svíþjóð.