38) Fljúgum hærra - Zofia Rydet
Fljúgum hærra - Ein Podcast von Lovísa og Linda

Pólski ljósmyndarinn Zofia Rydet varð frægust fyrir þá brjálæðislegu hugmynd sem hún fékk árið 1978; að ljósmynda öll heimili í landinu. Þá var hún 67 ára gömul en setti það alls ekki fyrir sig. Hún myndaði í meira en hundrað þorpum og skildi eftir sig stórkostlegt myndasafn sem vottar um hverfandi heim.