11) CBGB - Litla sóðabúllan á Manhattan sem varð vagga pönksins og nýbylgjunnar
Fljúgum hærra - Ein Podcast von Lovísa og Linda

CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði sköpunargleðin ríkjum. Þar áttu sitt athvarf allt frá Ramones og Blondie til Patti Smith, Talking Heads og Bad Brains.