#20 - Þetta fullorðna fólk fremur glæpi

Gestur þáttarins er Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði. Viðfangsefni þáttarins eru AFBROT; glæpir, refsingar, fangelsisvist og tenging mismunandi málaflokka við feðraveldið. 

Í þessum þætti fjöllum við um ofbeldi, þ.m.t. andlegt, líkamlegt og kynferðislegt. Þátturinn er því þungur á köflum og honum fylgir TRIGGER WARNING. Af hverju fremur fólk glæpi? Hvernig er að vera í fangelsi á Íslandi? Er einhver rót eða baksaga sem flestir fangar eiga sameiginlega? Eru meðferðarprógrömm í boði fyrir fanga í fangelsum? Hvað gera þeir þegar þeir losna? Af hverju er svona há prósenta fanga karlkyns? Finnst Íslendingum íslenskir dómarar yfirleitt fella of létta eða þunga dóma? Í hvers konar samfélagi viljum við búa? Frelsissvipting, feðraveldið, réttarkerfið, afglæpavæðing, sjálfsskoðun, siðferði, ábyrgð, boys will be boys, öryggi borgara, ómanneskjuleg fangelsi og fangar á vinnumarkaðnum.

Om Podcasten

Fyrir um 25 árum fæddust tvær litlar stelpur á Landspítalanum í Reykjavík sem eru nú sestar hér fyrir framan tvo litla míkrafóna sem senda raddir þeirra rakleiðis í sætu litlu eyrun þín kæri Homo sapiens. Velkomin í hlaðvarpið ÞETTA FULLORÐNA FÓLK ER SVO SKRÝTIÐ þar sem Björk Guðmundsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir kryfja breyskleika manneskjunnar í gegnum ýmsar kenningar og rannsóknir sem tengjast mannlegu eðli, menningu og gríni. Stef: K.óla