EKKERT RUSL - Freyr Eyjólfsson, Sorpu segir okkur allt sem snýr að nýrri og risastórri Góðs hirðis verslun sem opnar bráðlega. Bjarni Ágústsson, hjá ON, ræðir rafbílavæðinguna

Þeir eru hressir viðmælendur þessa þáttar en Freyr Eyjólfsson hjá Sorpu lýsir fyrir okkur hugmyndafræðinni sem tengist opnun á risastórri Góðs hirðs verslun í gömlu kassagerðinni. Bjarni Ágústsson hjá ON er fróður um rafbílavæðinguna og hvernig við sem neytendur getum fengið sem besta nýtingu á rafstöðvum.

Om Podcasten

Ruslið okkar kemur upp um okkur segja sérfræðingarnir. EKKERT RUSL er að vonum skemmtilegt og lifandi hlaðvarp um umhverfismál í umsjón Lenu Magnúsdóttur, sem hefur verið umhverfissinni frá fæðingu og Margréti Stefánsdóttur, sem er ekki beint umhverfissinni en er öll af vilja gerð að læra. Við fáum til okkar skemmtilega og jafnvel óvenjulega gesti í samhengi við umhverfismál sem og viðmælendur sem þekkja hvað best til málanna. Umhverfisvernd er heita kartaflan í dag – flestir hafa eitthvað til málanna að leggja, eða vilja það að minnsta kosti. Það er ekki nóg að kaupa Teslu og telja sig umhverfisverndarsinna - það þarf víst aðeins meira til. Kannski slæðast nokkrir fræðslumolar með inn á milli í þessu hlaðvarpi til þess að hjálpa venjulegum íslenskum heimilum að bæta sig í umhverfisvernd. Við sitjum víst öll í sömu súpunni og þurfum að hysja upp um okkur. Við getum þetta saman.