#8 Pétur Jóhann - 70 mínútur, Næturvaktin & Sagan

Fyndnasti maður Íslands árið 1999 sem að mínu mati heldur ennþá þeim titli, Pétur Jóhann Sigfússon kom í spjall til mín. Við ræddum 70 mínútur, Strákana, Svínasúpuna, Næturvaktina og fl. Fórum yfir það hvernig ferlið gengi fyrir sig og hvernig væri á setti. Fékk að kynnast Pétri og hans sögu töluvert betur sem var sannur heiður enda algjör snillingur.

Om Podcasten

Í þáttunum er farið létt yfir sögu viðmælanda en aðalega tölum við um það sem okkur dettur í hug. Grín er í fyrirrúmi en andlegi þátturinn eins og kvíði, þunglyndi, hamingja, álit annara, hugleiðsla og bæn eru topic sem koma oft fyrir á léttum nótum.